Bakkavör áformar að stækka núverandi eftirréttaverksmiðju sína, Isleport Foods, og ráða til sín 92 nýja starfsmenn. Þessir 92 starfsmenn kæmu til viðbótar við þá 153 starfsmenn sem nú starfa í verksmiðjunni og er gert ráð fyrir ráðningum á næsta ári. Ráðgert er að verksmiðjan stækki um allt að 1.200 fermetra í aðalbyggingunni. Talsmaður Bakkavarar staðfesti áform um stækkun á verksmiðjunni en vildi ekki staðfesta fjölda nýrra starfsmanna í viðtali við Foodmanufacture.co.uk.