Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] dansar við núllið og hefur nú hækkað um 0,6%. Vísitalan hafði í morgun hækkað um 1,1% en lækkað aftur um hádegi.

Glitnir [ GLB ] hefur hækkað mest félaga eða um 2,4%. Þá hefur Kaupþing [ KAUP ] hækkað um 0,9% og FL Group [ FL ] um 0,8%.

Bakkavör [ BAKK ] hefur lækkað um 3,5%, Eimskipafélag Íslands [ HFEIM ] um 2,3% og Icelandair Group [ ICEAIR ] um 1,8%.

Velta með hlutabréf er nú um 3,7 milljarðar.