Ágúst frá 365 til Advania Ágúst Valgeirsson hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns rafrænna viðskipta hjá Advania. Ágúst hefur undanfarin ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra tæknisviðs 365 miðla, en þar áður leiddi hann vöruþróun og ráðgjafastarfsemi Eskils/Innn um fjögurra ára skeið.

Hann hefur sömuleiðis víðtæka reynslu úr fræðaheiminum þar sem hann starfaði hjá tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík í sjö ár, þar af eitt ár sem deildarforseti. Ágúst er með M.Sc.-gráðu í rekstrar- og hagverkfræði frá Álaborgarháskóla