Það var rétt í þessu verið að greina frá því að Alan Curbishley hefði verið ráðinn nýr þjálfari West Ham United en blaðamannafundur þar um stendur nú í London.

Alan Curbishley var einn af þeim sem sóttu um að fá landsliðsþjálfara starf Englands en Steve McClaren fékk það eins og flestum ætti að vera kunnugt. Curbishley hætti með Chartlon eftir 15 ára starf í maí og sagðist þá ætlað að taka sér tímabundið frá frá stjórnun knattspyrnuliða.