Alfesca [ A ] tilkynnir að viðræðum um fyrirhuguð kaup á breska fyrirtækinu Oscar Mayer, sem framleiðir tilbúna rétti fyrir verslanakeðjur, hefur verið slitið, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Ákvörðunin var tekin í kjölfar verulegra hækkana á hráefnisverði undanfarna mánuði sem hafa haft áhrif á rekstur fyrirtækisins og leitt til þess að rekstrarumhverfið á markaði fyrir tilbúna rétti í Bretlandi hefur breyst til hins verra. Þessir óvissuþættir þýða að fyrirhuguð áform hefðu ekki haft í för með sér virðisauka fyrir huthafa Alfesca á þessum tíma.

Áfram verður unnið að því að þróa og stækka Alfesca. Sterkur efnahagsreikningur og stuðningur fjármálastofnana og kjölfestuhluthafa gerir Alfesca kleift að skoða áfram ný tækifæri sem henta við núverandi markaðsskilyrði. Frekari áform verða tilkynnt eftir því sem efni standa til.