Samkvæmt frétt sem Actavis hefur sent til kauphallarinnar hafa allir  framkvæmdastjórar Actavis Group hf. tilkynnt Novator um samþykki sitt við sölu á öllum hlutum í eigu þeirra og tengdra aðila til Novator samkvæmt þeim tilboðsskilmálum sem fram koma í tilboði Novator.

Tilboðsverð Novator er EUR 1,075 pr. hlut og eru fyrirvarar samkvæmt tilboði Novator í gildi þannig að sala hlutabréfanna hefur ekki átt sér stað.