Allri flugumferð til og frá London hefur verið lokað til kl. 19:00 í kvöld. Þetta kemur fram á vefsíðu flugumferðarstjónar Bretlands (NATS).

Þar kemur fram að lokunin sé vegna hruns á tölvukerfi í Swanwick-flugfjarskiptastöðinni. Er nú unnið að því að laga kerfið og mun NATS senda frá sér tilkynningu þegar nýjar fréttir berast.