Hópur sem kallar sig Almenningshlutafélag um Morgunblaðið hyggst gera Nýja Glitni tilboð í Árvakur hf.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en samkvæmt áætlun bankans þurfa óskuldbindandi tilboð að berast í síðasta lagi síðdegis á morgun. Bankinn mun síðan velja þá sem leyft verður að gera skuldbindandi tilboð. Frestur til að skila því tilboði rennur út um miðjan mánuðinn.

Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Félags fjárfesta fer fyrir hópnum en í tilkynningunni kemur fram að hópurinn hefur samið við VBS fjárfestingabanka um að koma fram fyrir sína hönd gagnvart Nýja Glitni.

Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að sérfræðingar VBS fjárfestingabanka hafa farið yfir útboðsgögn um Árvakur frá Nýja Glitni, en hópurinn sem kennir sig við Almenningshlutafélag fékk gögnin í hendur síðastliðin föstudag. Gert er ráð fyrir að drög að næstu skrefum liggi fyrir á morgun, samhliða tilboði.

„Tilboðið verður gert á viðskiptalegum forsendum,“ segir í tilkynningunni.

Byrjuðu á Facebook

Þá kemur fram að yfir eitt þúsund manns eru þátttakendur í undirbúningi að Almenningshlutafélagi um Morgunblaðið. Fjölmargir eru félagar á Facebook síðu hópsins, þar sem hann kom fyrst upp á yfirborðið fyrir fáeinum dögum, auk þess sem töluverður hópur fólks hefur nú þegar sýnt framtakinu stuðning í verki með því að heita að leggja til hlutafé, í gegnum vefsíðuna www.almenningshlutafelag.is .

Enn er verið að taka við skráningum áhugasamra á síðunni. Rétt er að taka fram að ekki er um skuldbindandi hlutafjárloforð að ræða á þessu stigi.

„Hugmyndin er að til verði stór og öflugur íslenskur fjölmiðill sem sé í dreifðri eignaraðild,“ segir í tilkynningunni.

„Gagnrýninn og vandaður fjölmiðill sem sé hvorki í tengslum við stjórnmálaflokka né viðskiptablokkir. Þetta markmið verður tryggt með ákvæðum í stofnsamþykktum væntanlegs hlutafélags, sem kveði á um hömlur á atkvæðisrétti hvers einstaks hluthafa.“