Hlutabréf Alvotech voru tekin til viðskipta á íslenska First North-markaðnum fimmtudaginn í morgun, undir auðkenninu „ALVO“ en vika er síðan viðskipti með bréf félagsins hófust í bandarísku Nasdaq kauphöllinni í New York. Gert er ráð fyrir því að Alvotech verði fyrsta íslenska fyrirtækið sem skráð er á markað bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi, að því er kemur fram í tilkynningu.

Til að fagna skráningu félagsins mun Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech, hringja lokabjöllu Nasdaq-markaðarins í Reykjavík í dag. Athöfnin fer fram í höfuðstöðvum Alvotech í Vatnsmýrinni. Bein útsending af viðburðinum hefst á vefnum kl. 15:15, sem finna má hér.

Sjá einnig: „Risastór dagur“

„Það er okkur mikil ánægja að ljúka fyrstu tvíhliða skráningu íslensks fyrirtækis í Bandaríkjunum og á Íslandi og að hafa náð þessum áfanga aðeins viku eftir að viðskipti hófust með bréf félagsins í New York,“ sagði Róbert Wessman. „Á síðustu 10 árum höfum við fjárfest fyrir meira en einn milljarð Bandaríkjadala í fullkominni aðstöðu til að þróa og framleiða líftæknihliðstæðulyf í miklu magni. Þetta gerir því frábæra teymi sem starfar hjá Alvotech nú mögulegt að mæta vaxandi eftirspurn sjúklinga um allan heim eftir ódýrari hliðstæðum við dýr líftæknilyf.“

Hlutabréfaverð Alvotech hækkaði töluvert strax í kjölfar skráningar á bandaríska hlutabréfamarkaðinn og endaði fyrsta daginn í 11,19 dali á hlut. Gengið hefur síðan þá fallið um tæplega 14% og stóð í 9,59 dölum við lokun markað í gær. Gengið í fyrstu viðskiptum á First-North markaðnum í dag er 1.300 krónur.

Alvotech lauk samruna við sérhæfða yfirtökufélagið Oaktree Acquisition Corp. II þann 15. júní síðastliðin. Í apríl 2022 tilkynnti Alvotech að það hefði gert samning við YA II PN, Ltd. (Yorkville) um valkvæðan sölurétt á hlutabréfum félagsins, svonefndan SEPA (e. Standby Equity Purchase Agreement). Á sama tíma var tilkynnt að Sculptor Capital Management hefði undirritað bindandi viljayfirlýsingu við Alvotech um lánalínu. Gert er ráð fyrir að þessar fjármögnunarleiðir geti verið nýttar samkvæmt nánari ákvörðun Alvotech til að mæta útflæði vegna endurgreiðslu OACB til hluthafa sinna. Viðræður um lánasamninginn standa yfir og eru háðar samþykki allra hlutaðeigandi aðila.

11 þúsund milljarða markaður

Alvotech þróar átta líftæknihliðstæður, sem geta nýst til meðferðar við fjölda sjúkdóma. Markaður fyrir viðmiðunarlyf þessara hliðstæða er áætlaður rúmlega 85 milljarðar Bandaríkjadala, eða um 11.050 milljarðar króna, á ári samkvæmt greiningu EVALUATE Pharma. Fyrsta vara Alvotech á markaði er AVT02 (adalimumab), líftæknilyfjahliðstæða við Humira, sem er mest selda lyf heims að COVID-19 bóluefnum undanskildum.