Gengi AMR, móðurfélags American Airlines, hefur hækkað um 46% frá opnun á Wall Street í dag, eftir algjört hrun í gær.

Þá tilkynnti félagið um að það hafi lagt fram ósk um greiðslustöðvun.  Gengið hrundi við það úr 1,6 dölum á hlut í 23 sent. Það stendur nú í 38 sentum á hlut.

American Airlines.
American Airlines.