Gengi hlutabréfa AMR Corp., móðurfélags American Airlines, féll um 8,49% á hlutabréfamarkaði vestan hafs í gær og nam 36,7 Bandaríkjadölum hluturinn. FL Group keypti nýlega 5,98% hlut í móðurfélaginu, líkt og Viðskiptablaðið greindi frá fyrr í dag.

"Ekki er ólíklegt að rekja megi þessa lækkun til tilkynningar AMR í gær um að félagið ætli að auka hlutafé sitt um rúmlega 6%. Bréfin munu verða seld á genginu 38,7 dalir á hlut og eiga að skila félaginu 503,1 milljónum dala. Félagið hyggst nýta þessa fjármuni m.a. til greiðslu skulda og skuldbindinga auk kaupa á nýjum flugvélum," segir greiningardeild Kaupþings banka.

Hún segir að gengi bréfa félagsins höfðu fram að því hækkað um 32% á nýju ári og var gengi bréfanna við lokun markaða á mánudag 40,09 dalir.