Ámundi Sigmundsson hefur verið ráðinn sem sölumaður hjá Ísafoldarprentsmiðju. Ámundi hefur starfað síðastliðin 2 ár hjá Prentsmiðjunni Odda ehf.  sem sölumaður á prentverki.  Hann hefur starfað s.l. 25 ár í sölumennsku og starfaði  áður hjá ZOON.  Ámundi er íþróttakennari frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni.  Einnig hefur hann stundað nám í markaðs og útflutningsfræðum  hjá endumenntun HÍ.  Hann er kvæntur Svövu Steinu Rafnsdóttur tölvunarfræðingi og eiga þau tvö börn.