Stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar eru mun ánægðari með störf forsetans en stuðningsmenn stjórnarinnar, að því er kemur fram í nýrri könnun MMR . Af þeim sem tóku afstöðu og sögðust styðja ríkisstjórnina voru 31,2% ánægð með störf forsetans, borið saman við 79,1% þeirra sem kváðust ekki styðja ríkisstjórnina.

Ánægja almennings með störf forsetans hefur aukist töluvert í kjölfar þess að niðurstaða fékkst í Icesave málinu. Könnunin var framkvæmd dagana 31. til 6. febrúar og var heildarfjöldi svarenda 874 á aldrinum 18-67 ára.

Af þeim sem Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 63,6% ánægð með störf forsetans nú, borið saman við 49,0% í síðustu mælingu á undan, sem var framkvæmd á tímabilinu 15-20 janúar 2013. Af þeim sem tóku afstöðu stögðust 19,6% vera óánægð með störf forsetans nú, borið saman við 25,4% í janúar.

Munur var á afstöðu eftir aldri og stjórnmálaskoðun. Ánægja með störf forsetans minnkar með hækkandi aldri. Þannig voru 54,6% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar í elsta aldurshópnum, 50-67 ára, ánægð með störf forsetans borið saman við 67,7% á aldrinum 30-49 ára og 66,6% á aldrinum 18-29 ára.

Þegar ánægja með störf forsetans var skoðuðu út frá stuðningi við flokka kom í ljós að hlutfallslega flest þeirra sem sögðust styðja Framsóknarflokkinn voru ánægð með störf forsetans. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Framsóknarflokkinn voru 91,8% ánægðir með störf forsetans. Hlutfallslega minnst ánægja var með störf forsetans á meðal þeirra sem styðja Vinstri græn. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Vinstri græn sögðust 27,0% ánægð með störf forsetans.