Andrew Bernhardt tekur við starfi framkvæmdastjóra Lánasviðs Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka hf. (“Straumur”). Andrew tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn bankans. Margit Robertet, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra Lánasviðs, lætur af störfum 1. nóvember 2007.   Margit var skipaður framkvæmdastjóri Lánasviðs í september 2005, en hún hóf störf hjá Burðarási fyrr á því ári við stjórn fjárfestinga.

Andrew Bernhardt hefur gegnt starfi yfirmanns Lánasviðs í London frá því í október á þessu ári. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri á sviði skuldsettrar fjármögnunar hjá GE Commercial Finance frá árinu 2005. Þar áður starfaði hann í 27 ár hjá Barclays Bank, síðast sem yfirmaður á sviði skuldsettrar fjármögnunar í London frá 2001 til 2005.