Andri Már Rúnarsson hefur verið ráðinn sérfræðingur í eignastýringu og fjárfestatengill hjá Sjóvá og hefur þegar hafið störf. Hann kemur til Sjóvá frá hollenska bankanum ABN AMRO þar sem hann starfaði við áhættustýringu síðustu tvö árin. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Áður starfaði hann við fjárstýringu og áhættustýringu hjá tæknifyrirtækinu ASML í Hollandi um þriggja ára skeið, en ASML er stærsta fyrirtækið í Hollandi.

Andri Már er með BSc gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og MSc heiðursgráðu í fjármálum og áhættustýringu frá Vrije Universiteit Amsterdam.

Hann er í sambúð með Margréti Eddu Magnúsdóttur, nútímafræðingi og nema í hnattrænum fræðum og eiga þau eitt barn.