Fjárfestingasjóðurinn Apax hefur ákveðið að gera ekki formlegt kauptilboð í bresku stórvöruverslunarkeðjuna House of Fraser, segir í frétt breska dagblaðsins The Times.

Gengi bréfa House of Fraser féll um 10% í kjölfarið í gær, segir í fréttinni. Ástæðan fyrir því að slitnaði upp úr samningaviðræðunum er sögð vera sú að ekki hafi náðst samkomulag um kaupverð.

Fjölmargir smásöluverslunarfjárfestar, þar á meðal Baugur, hafa verið orðaðir við House of Fraser.