Apple, tölvurisinn, hefur nú viðurkennt að galli í iPod Nano hafi leitt til þess að þeir hafi stundum ofhitnað.

Apple tekur þó fram að fremur sjaldgjæft var að þetta gerðist, eða í um 0,001% iPod Nano sem seldir voru á árunum 2005 og 2006.

Engar alvarlegar afleiðingar má rekja til þessara tilfella. Viðurkenning Apple á gallanum kemur í kjölfar rannsóknar stjórnvalda í Japan á gallanum.

Eigendur iPod Nano, sem keyptir eru á árunum 2005 og 2006, eru hvattir til að láta skoða þá ef þá grunar að þeir geti ofhitnað.