Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 11 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er talsvert betri niðurstaða en í fyrra þegar niðurstaðan var neikvæð um 3,5 milljarða króna. Tekjuaukning skýrist fyrst og fremst af arðgreiðslu Landsbankans til ríkissjóðs upp á 19 milljarða á fjórðungnum.

Fram kemur í Þjóðhagsreikningum Hagstofunnar að tekjuafgangurinn nam 2,5% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 5,1% af tekjum hins opinbera.

Heildartekjur hins opinbera jukust um 12,4% milli ára.

Heildarútgjöld hins opinbera jukust um 4,7% milli 1. ársfjórðungs 2013 og 2014. Sú útgjaldaaukning skýrist aðallega af aukinni fjárfestingu og meiri launakostnaði. Magnbreyting samneyslu hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2014 mældist 2,0% en var 2,2% fyrir sama ársfjórðung 2013.