Ariel Sharon, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, er látinn eftir margra ára veikindi.

Sharon varð forsætisráðherra Ísraels árið 2001 en hann fékk vægt heilablóðfall árið 2005. Ári síðar fékk hann annað alvarlegra heilablóðfall og hefur verið í dái síðan þá.