Arnar Már Arnþórsson
Arnar Már Arnþórsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Arnar Már Arnþórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs WOW air. Arnar Már kemur til WOW air frá Bláa Lóninu hf. þar sem hann hefur gengt starfi sölu- og markaðsstjóra frá árinu 2012. Markaðurinn, fylgiblað Fréttablaðsins um viðskipti, greindi frá því í morgun að Linda Jóhannsdóttir sem sat í framkvæmdastjórn hefði sagt upp störfum hjá fyrirtækinu.

Á árunum 2009 til 2012 starfaði Arnar sem markaðsstjóri Icelandair í Norður Ameríku og sem sölustjóri sama svæðis frá 2008 til 2009. Hann starfaði sem umdæmisstjóri Icelandair í Hollandi frá 2006 til 2008 og var sölu- og markaðsstjóri Hertz á Íslandi frá 2004 til 2006. Þá starfaði hann sem verkefnastjóri á sölu-og markaðssviði Icelandair frá 2002 til 2004.

Arnar Már er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann er kvæntur Helenu Guðrúnu Bjarnadóttur, viðburðastjóra hjá Marel, og eiga þau þrjú börn.