Arnar Þór Sævarsson, hdl., hefur verið ráðinn aðstoðarmaður iðnaðar-og viðskiptaráðherra frá og með 1. júlí n.k. Arnar Þór er 34 ára og starfaði áður hjá Fjármálaeftirlitinu frá árinu 1999 til 2001 og hjá Símanum frá 1. janúar 2002 til 30. júní 2006.

Arnar Þór útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 1999, öðlaðist héraðsdómslögmannaréttindi árið 2000 og lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2001.

Arnar Þór á tvö börn og er í sambúð með Gerði Betu Jóhannsdóttur, hjúkrunarfræðingi.