Stjórn Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. hefur ráðið Ásberg Konráð Ingólfsson í stöðu framkvæmdastjóra. Ásberg tekur við stöðunni 1. apríl næstkomandi af Halldóri Torfasyni, sem lætur af störfum vegna aldurs. Þetta kemur fram í tilkynningu um málið.

Ásberg Konráð Ingólfsson
Ásberg Konráð Ingólfsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Ásberg er 48 ára gamall verkfræðingur, með meistaragráðu í byggingaverkfræði frá University of Washington en sérgreinar námsins voru á sviði framkvæmda, flugvallargerðar og slitlagahönnunar. Þar áður, árið 1996, hafði hann lokið námi í byggingartæknifræði frá Tækniskóla Íslands.

Að loknu námi hóf Ásberg störf á framkvæmdasviði VSÓ Ráðgjafar ehf. og vann meðal annars við framkvæmdaeftirlit við gerð virkjana, flugvalla og hafnarsvæða. Á árunum 2002 til 2005 starfaði Ásberg hjá Orion Ráðgjöf við veghönnun og framkvæmdaeftirlit.

Undanfarin ár hefur Ásberg starfað sem verkefnastjóri og ráðgjafi hjá VSÓ Ráðgjöf. Hann hefur haft umsjón með ýmsum verkefnum meðal annars fyrir Vegagerðina og Reykjavíkurborg svosem við brúargerð, slitlagsframkvæmdir, vega- og gatnagerð.

Ásberg hefur einnig unnið við hönnun ýmissa mannvirkja og gerð kostnaðaráætlana fyrir framkvæmdir. Á árunum 2008 til 2016 sat Ásberg í slitlaganefnd norræna vegtæknisambandsins, NVF, hér á landi. Þá sat Ásberg um tíma í stjórn Stéttarfélags verkfræðinga og í samninganefnd félagsins. Sambýliskona Ásbergs er Þórhildur Guðmundsdóttir verkfræðingur og eiga þau tvær dætur.

Í tilkynningunni þakkar stjórn félagsins Halldóri Torfasyni „hans góða starf í þágu fyrirtækins á liðnum áratugum.“