Matvöruverslanakeðjan Asda ætlar að opna 25 nýjar verslanir og þrjú ný lagersvæði sem eiga að skapa 5.000 störf á árinu. Að auki verða um 43 verslanir stækkaðar og betrumbættar.

Asda sem er önnur stærsta matvöruverslanakeðja Bretlands er með 528 verslanir víða um Bretland og hjá fyrirtækinu starfa 180.000 manns. Asda er í eigu Walmart.