Ásgeirs Eiríkssonar hefur verið ráðinn yfirmaður ráðstefnu- og hvataferðardeildar Iceland Travel.

Ásgeir er menntaður rekstrarhagfræðingur frá Uppsalaháskóla og með leiðsögumannapróf frá Leiðsöguskóla Íslands. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Strætó bs frá 2001 þar til fyrr á þessu ári og vann áður margvísleg störf, bæði hjá hinu opinbera og innan einkageirans. Hann hefur lengi haft áhuga á ferðaþjónustunni, einkum eftir að leiðsögunámi lauk árið 2000 og hefur verið viðloðandi ferðaþjónustuna síðan þá sem leiðsögumaður í hjáverkum, en í fullu starfi frá því snemma á þessu ári.

Hann er kvæntur Kristrúnu Davíðsdóttir lyfjafræðingi og eiga þau tvo uppkomna syni.