Ásmundur Stefánsson hóf störf í dag sem bankastjóri Nýja Landsbankans.

Um leið mun Elín Sigfúsdóttir láta af störfum sem bankastjóri en samkvæmt upplýsingum sem fengust í bankanum mun hún verða honum innan handa næstu daga.

Ásmundur hefur gegnt starfi stjórnarformanns Nýja Landsbankans en við því starfi tekur Haukur Halldórsson varaformaður stjórnar bankans.