Bæjarráð Akranes hefur samþykkt beiðni um staðsetningu á nýrri bensínafgreiðslustöð Atlantsolíu ehf. á lóðinni Kirkjubraut 39. Gert er ráð fyrir að um sjálfsafgreiðslustöð sé að ræða og að stöðuheimild fyrir afgreiðsluna verði á meðan núverandi hús (Málningarbúðin) stendur, en í núverandi skipulagsskilmálum fyrir byggingarreitinn er gert ráð fyrir að byggingin verði fjarlægð og þar rísi 3ja hæða verslunar- og skrifstofubygging eða stofnanabygging sem taki mið af Kirkjubraut 37 og Heiðarbraut 40 hvað hæð varðar.