Í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu Atorku Group hf. með viðskiptabönkum félagsins, hefur félagið samið við alla eigendur skuldabréfa í eftirtöldum flokkum um kyrrstöðu til 20. mars 2009.

Þetta kemur fram í tilkynningu Atorku til Kauphallarinnar en þeir flokkar sem um ræðir eru:  ATORKA 07 2, útgefinn að verðmæti 3,5 milljarða ISK og ATORKA 06 1, vegna vaxtagjalddaga, útgefinn að verðmæti 2 milljarða ISK.

Þá kemur fram að í samningnum felst að komið er á fót nefnd sem í eiga sæti fulltrúar eigenda skuldabréfa í flokkunum.

„Sú nefnd vinnur að tillögum um samninga sem tryggja eiga hag eigenda skuldabréfa í flokknum. Þegar niðurstaða hefur verið fengin mun verða tilkynnt um hana,“ segir í tilkynningunni.