Verðlagningu vegna verðbreytinga áfengis 1. nóvember næstkomandi er lokið og mun áfengi hækka að meðaltali um 5,25% um þessi mánaðamót.

Verð breytist á rúmlega helmingi þess áfengis sem er í boði í Vínbúðunum.

Þetta kemur fram í tilkynningu ÁTVR.

Í tilkynningunni kemur fram að gengisbreytingar undanfarið hafa ekki eins mikil áhrif til hækkunar á útsöluverði áfengis og margir hafa búist við.

„Ástæðan er sú að áfengisgjöld, sem vega þungt í útsöluverðinu, breytast ekki. Þá er álagningarprósenta ÁTVR óbreytt,“ segir í tilkynningunni.