Ríkisstjórnin hefur ákveðið að styðja í auknum mæli við jarðhitanýtingu í þróunarríkjunum og hafa þegar verið undirbúin námskeið í Afríku, Asíu og Mið-Ameríku á vegum jarðhitaskólans á árunum 2006-2008, þar sem áhersla verður lögð á rannsóknir og nýtingu jarðhita í þessum ríkjum og rekstur jarðhitaorkuvera. Þetta kom fram í ávarpi Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra á alþjóðlegu jarðhitaráðstefnuni í Antalya í Tyrklandi sem hófst í gær.

Ráðherra greindi frá að fyrirhugað væri að tvöfalda alþjóðlega þróunaraðstoð Íslands á næstu árum og mun sú aðstoð einkum beinast að sjálfbærri nýtingu auðlinda og þar myndi aukinn stuðningur við jarðhitanotkun vega þungt.

Um 1300 þátttakendur sitja ráðstefnuna. Auk Valgerðar ávörpuðu ráðstefnuna ráðherrar orkumála og umhverfismála í Tyrklandi.

Ráðherra minntist í upphafi á að Íslendingar hefðu verið stofnfélagar í Alþjóða jarðhitasambandinu og ávallt verið afar virkir í starfi þess enda væri jarðhitanotkun á Íslandi sú mesta í heimi, eða 54% af orkunotkun þjóðarinnar. Nýting jarðhitans hefði á síðustu áratugum orðið samofin daglegu lífi og velferð þjóðarinnar auk þess að hafa sparað þjóðinni árlega marga milljarða króna miðað við sambærilega olíunotkun fyrri ára.

Ráðherra greindi frá fyrirhuguðum rannsóknum við djúpborun rannsóknarholu sem getur skipt sköpum varðandi mögulega nýtingu jarðhitasvæða víða um heim.

Þá fjallaði ráðherra um skyldur þjóða heims varðandi losun gróðurhúsalofttegunda en aukin jarðhitanotkun er af mörgum talin einn álitlegasti kostur aukinnar orkunýtingar, ekki síst í þróunarríkjum. Íslensk stjórnvöld hefðu í 26 ár rekið jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna og væru þau afar stolt af því starfi er þar fer fram. Alls hefðu 318 nemendur stundað nám í skólanum frá upphafi en 80 þeirra sitja ráðstefnuna í Tyrklandi og eiga þeir hlut í 144 erindum af þeim 706 er þar verða flutt.

Að loknum ávörpum í upphafi ráðstefnunnar fóru forráðamenn hennar þess á leit við Valgerði Sverrisdóttur að hún opnaði formlega yfirgripsmikla jarðhitasýningu sem haldin er í tengslum við ráðstefnuna.