Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 23,4 milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2011 samanborið við 21,1 milljarð á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 2,3 milljarða eða 10,8% á milli ára. Hagstofan greinir frá.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok febrúar orðið 13,2 milljarðar og dróst saman um 18,7% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 16,3 milljörðum króna. Verðmæti þorskafla var um 7,7 milljarðar og dróst saman um 18,3% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam tæpum 1,9 milljörðum og dróst saman um 34,9%, en verðmæti karfaaflans nam 1,7 milljörðum, sem er 6,1% samdráttur frá fyrstu tveimur mánuðum ársins 2010. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 19,4% milli ára í 679 milljónir.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 1,6 milljörðum króna í janúar til febrúar 2011, sem er 25,4% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 143,4% milli ára og nam rúmum 8,4 milljörðum. Má rekja þá verðmætaaukningu til aukins loðnuafla. Verðmæti hans nam 7,3 milljörðum króna og jókst um 357% milli ára.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 14,5 milljörðum króna og jókst um 44,4% frá árinu 2010. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 14,9% milli ára og var um 3,2 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 4,8 milljarðar sem er 15% samdráttur milli ára.