Auður I fagfjárfestasjóður, sem rekinn er af Auði Capital, hefur keypt tæplega 22% hlut í Gagnavörslunni ehf. Í tilkynningu frá Auði Capital segir að Gagnavarslan sé óháð þekkingarfyriræki sem býður þjónustu og hugbúnaðarlausnir á sviði gagnavörslu og upplýsingastýringar.

Hjá Gagnavörslunni starfa um 40 manns. Forstjóri fyrirtækisins er Brynja Guðmundsdóttir. Eftir hlutafjáraukninguna eru Brynja Guðmundsdóttir, Auður I og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins stærstu hluthafar félagsins.