Tilboð Avion Group HF í allt hlutafé Atlas Cold Storage Income Trust, sem átti að renna út þriðjudaginn 17.október, verður framlengt til föstudagsins 20. október 2006, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Tilboðið var upprunalega tilkynnt 3. ágúst 2006 og var sent hluthöfum Atlas þann 17. ágúst 2006. Upprunalega tilboðið átti að renna út 22. september, en var framlengt til 6. október og var svo aftur framlengt til 17. október.

Skilmálar tilboðsins eru óbreyttir. En tilboðið hljóðar upp á sjö kanadíska dali fyrir hvern hlut í félaginu. Heildarvirði félagsins (e. enterprise value) er um 574 milljónir kanadrískra dala, samkvæmt tilboðinu, eða rúmlega 37 milljarðar íslenskra króna