Fjárfestingafyrirtækið Advent Air, sem starfrækir flugsamgöngur í Ástralíu og Suðaustur-Asíu, mun fara í samstarf með íslenska fjárfestingafélaginu Avion Group, segir í tilkynningu Advent Air.

Tvö af flugfélögum í eigu Avion Group, franska Star Airlines og þýska Star Europe, munu leigja Advent Air, eina til fjórar Airbus A320 þotur, segir í tilkynningunni.

Flugfélagið Skywest mun nota þoturnar, en Advent Air á 78,1% hlut í Skywest flugfélaginu og hefur gert tilboð í yfirtöku Skywest.