Tilboð Stofnáss ehf.  í St. Jósefsspítala, sem stendur við Suðurgötu 41 í Hafnarfirði og Skrauta ehf. í þriggja hæða hús við Suðurgötu 44, eru ekki viðunandi að mati bæjarstjórnar Hafnarfjarðarbæjar.

Stofnás bauð 85 milljónir í spítalann, sem er um 3.000 fermetrar og Skrauta tæpar 38 milljónir í Suðurgötu 44, en húsnæðið er tæplega 900 fermetrar. Fasteignamat spítalans hljóðar upp á 382 milljónir og fasteignamat Suðurgötu 44 hljóðar upp á 107 milljónir.

Ríkið á 85 prósenta eignarhlut í byggingunum en Hafnarfjarðarbær á hin 15 prósentin. Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðarbæjar í dag var samþykkt samhljóða að  fela bæjarstjóra að taka upp viðræður við ríkið sem miði að því að bærinn fái fullt forræði yfir húsnæði St. Jósefsspítala.

„Bæjaryfirvöld hafa  leitað ýmissa leiða til að hefja megi á ný starfsemi af einhverju tagi í St. Jósefsspítala en ekki haft erindi sem erfiði. Á þessum tímapunkti er það mat bæjaryfirvalda að rétt sé að leita leiða til að fá fullt forræði yfir þessum fasteignum og því hefur bæjarstjórn falið mér að  hefja viðræður við ríkið. Komi til þess að bærinn fái forræði yfir húseignunum verður settur á laggirnar starfshópur um framtíðarnotkun og næstu skref „ segir Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri í frétt á heimasíðu bæjarins.

Í samstarfssáttmála núverandi meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar segir að leitað verði leiða til að hefja aftur starfsemi í St. Jósefsspítala í samstarfi við hagsmunaaðila.