Stjórn Exista hefur ákveðið að selja allan hlut félagins í Bakkavör Group hf, samtals 855.151.478 hluti eða sem nemur 39,629% af heildarhlutafé, til ELL 182 ehf.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Exista.

Þar kemur fram að söluverð er 9,79 krónur á hlut sem er síðasta dagslokagengi í Bakkavör Group 8. október.

Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki lánveitenda. Eftir viðskiptin á hvorki Exista né dótturfélög þess hluti í Bakkavör Group.

Eigendur ELL 182 ehf. eru stofnendur og aðalstjórnendur Bakkavör Group, Lýður Guðmundsson og Ágúst Guðmundsson.

„Með sölunni er stuðlað að því að tryggja stöðugleika í framtíðarrekstri og eignarhaldi félagsins," segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Lýður Guðmundsson er stjórnarformaður Exista og Bakkavarar. Ágúst Guðmundsson er stjórnarmaður í Bakkavör og forstjóri félagsins.