Pastaframleiðslu Bakkavarar í Scunthorpe í Bretlandi verður lokað í lok mánaðarins. Þetta kemur fram á fréttavefnum Flexnews.

Lokun verksmiðjunar mun að sögn Flexnews leiða til uppsagnar á öllum starfsmönnum hennar en hjá fyrirtækin starfa 107 manns.

Hækkandi hrávörukostnaður og samdráttur á mörkuðum eru sagðar ástæður lokunar verksmiðjunnar.