Baltasar Kormákur verður viðstaddur sérstaka viðhafnarforsýningu á 2Guns sem fram fer annað kvöld. Eins og kunnugt er leikstýrir Baltasar myndinni en Denzel Washington og Mark Wahlberg fara með aðalhlutverk.

2Guns hefur nú þegar hlotið gríðarlega góðar viðtökur vestanhafs en hún fór beint í toppsætið þegar hún var frumsýnd þar fyrir tæpum tveimur vikum. Tekjur fyrstu helgina námu tæplega 30 milljónum dollara fyrstu helgina.

2Guns er frumsýnd á föstudaginn í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Borgarbíói Akureyri og í Sambíóunum Egilshöll.

Í tilkynningu frá Senu segir að þeir sem eru vinir Senu á Fésbókinni eigi möguleika á því að tryggja sér miða á forsýninguna annað kvöld.