Bandarískir markaðir opnuðu grænir í Bandaríkjunum í morgun. Nú þegar markaðir hafa verið opnir í tæpan klukkutíma hefur Nasdaq hækkað um 2,1%, Dow Jones um 1,6% og S&P 500 um 2,4%.

Jákvætt uppgjör skartgripakeðjunnar Tiffany & Co hefur augljóslega haft áhrif á markaði að því er Bloomberg fréttaveitan greinir frá og þá ber einnig að nefna mögulega hækkun á tilboði J.P. Morgan í Bear Stearns bankann eins og vb.is greindi frá fyrr í dag .