Bandaríkjadalur hefur lækkað gagnvart 13 af 16 helstu gjaldmiðlum heims á markaði í Asíu í dag í kjölfar vangaveltna um að Seðlabanki Bandaríkjanna muni lækka stýrivexti í desember.

Dalurinn hefur ekki verið lægri gagnvart ensku pundi í 26 ár.