Marner Jacobsen og Bjarni Olsen hafa látið af störfum bankastjóra Eik banka. Bogi Bendtsen hefur tekið við starfinu tímabundið.  Þá hefur Frithleif Olsen sagt sig frá stjórnarformennsku. Nýr stjórnarformaður er Tórmund A. Joensen og Odd Bjellvag hefur tekið sæti í stjórninni. Eik banki á nú í viðræðum við danska fjármálaeftirlitið um lausn mála en nauðsynlegt þykir að bankinn auki greiðsluþol.