Myndband af veisluhöldum og öðru úr boðsferð Baugs til Mónakó árið 2007 hefur nú aftur verið sett inn á Youtube en þar er að finna úrklippur úr ferðinni auk þeirra skemmtiatriða sem þar voru í boði.

Myndbandið var sett inn í byrjun síðustu viku en tekið út aftur. Meðal efnis í myndbandinu voru svokallaðir „sketsar“ eða myndbrot með þeim félögum Matt Lucas og David Williams úr Little Britain en þeir höfðu unnið atriði um Baug sérstaklega fyrir ferðina. Vegna höfundaréttar var myndbandið tekið út en Saga Film, sem sá um útgáfu myndbandsins, gerði athugasemdir við birtingu þess og taldi að mögulega væru um að ræða brot á höfundarétti. Yfir 24 þúsund manns höfðu skoðað gamla myndbandið.

Svo virðist sem myndbandið hafi verið klippt til og myndbrotin með Little Britain tekin út.

Meðal þeirra sem skemmtu gestum voru Tina Turner en undir myndbandinu hljómar lagið „Simply the best.“

Í upphafi myndbandsins sjást þeir Stefán Hilmarsson, fyrrv. fjármálastjóri Baugs, Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrv. stjórnarformanns Baugs, Gunnar Sigurðsson, fyrrv. forstjóri Baugs og Skarphéðinn Berg Steinarsson, fyrrv. stjórnarformaður FL Group og fyrrv. forstjóri Landic Property í flugstjórnarklefa flugvélar þar sem þeir bjóða gesti velkomna.

Þá má einnig finna úrklippur af öðrum skemmtiatriðum frá ferðinni, ræðuhöldum Jóns Ásgeirs, Höllu Tómasdóttur, stjórnarformanns Auðar Capital og Guðmundar Marteinssonar, framkvæmdastjóra Bónus. Auk þess sést Jón Ásgeir reyna fyrir sér í X Factor.

Myndbandið má sjá hér.