Baugur ætlar ekki að auka verulega við eignarhlut sinn í bresku tískuvöruverslunarkeðjunni French Connection, segir í frétt Reuters.

Baugur á nú um 13,7% og hefur verið að auka jafnt og þétt við við eignarhlutinn síðustu daga. Ef Baugur fer yfir 15% er félagið flöggunarskylt í hvert skipti sem eignarhluturinn eykst um 1%, samkvæmt reglum kauphallarinnar í London.

Heimildamaður Reuters segir að Baugur sé sáttur við stöðuna og telur að fyrirtækið muni ekki bæta verulega við núverandi eignarhlut sinn.