Baugur er orðin stærsti hluthafi danska félagsins TK Development að því er kemur fram í danska viðskiptablaðinu Børsen. Þar kemur fram á Baugur á nú 6% hlut eða 1.684.000 hluti í TK Development.

Í frétt Børsen kemur farm að ekki hafi náðst í forsvarsmenn Baugs en gert sé ráð fyrir að hér sé fyrst og fremst um að ræða stöðutöku af hálfu Baugs. Ekki er vitað hvort Baugur mun sækjast eftir stjórnarsæti. Við tíðindinn hafa bréf TK Development hækkað um 3,9 % í kauphöllinni og standa nú í 135.

Fyrir var Kurt Daell stærsti hluthafinn með 5,43 % hlutafjár.