Mikill samdráttur var í fataverslun í júlí þrátt fyrir að vera einn af stærstu útsölumánuðum ársins. Samkvæmt Rannsóknarsetri verslunarinnar mældist samdrátturinn 11% og því enn beðið eftir að botninum verði náð í fataverslun að mati greiningarþjónustu IFS.