Birgir Ármannsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins nú í haust. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Birgir sendi fjölmiðlum í morgun og segist hann þar þeirrar skoðunar að Sjálfstæðisflokkurinn eigi góða sóknarmöguleika í kosningunum í vor.

Birgir mun því keppa við Guðlaug Þór Þórðarson um annað sætið. Guðlaugur skipað annað sæti á lista flokksins í kosningunum 2009 en hafði þá sóst eftir fyrsta sæti en beðið ósigur fyrir Illuga Gunnarssyni. Birgir skipaði sjötta sæti á listanum en sóttist eftir 4-5 sæti.

Um forystuna keppa þau Illugi Gunnarsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir sem bæði sækjast eftir fyrsta sæti á lista flokksins í Reykjavík.