Birna Bragadóttir hefur verið ráðin inn í ráðgjafateymi Capacent, en þar mun hún starfa við mannauðsmál, markþjálfun stjórnenda, breytingastjórnun og innleiðingu á markvissari þjónustu.

Birna var starfsþróunarstjóri Orkuveitu Reykjavíkur frá 2012 til 2016 og starfaði þar áður hjá Icelandair í 13 ár við mannauðsstjórnun, þjónustustjórnun og þjálfun og fræðslu starfsmanna.

Birna er með BA-gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands og MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.  Hún er jafnframt stjórnendamarkþjálfi frá Coach University.