Birna Lind Björnsdóttir, nýr sölustjóri FlyOver Iceland
Birna Lind Björnsdóttir, nýr sölustjóri FlyOver Iceland
© Aðsend mynd (AÐSEND)
FlyOver Iceland, sem opnaði 29. ágúst sl., hefur ráðið Birnu Lind Björnsdóttir sem sölustjóra. Líkt og nafnið gefur til kynna er FlyOver Iceland sýndarflugsýning þar sem gestum er boðið í ferðalag yfir náttúru Íslands. Fyrirtækið greinir frá ráðningu Birnu í fréttatilkynningu.

Birna Lind hefur starfað í ferðaþjónustu í yfir 30 ár. Hún var framkvæmdastjóri og meðeigandi Travel East, ferðaskrifstofu sem skipuleggur ferðir á Austurlandi. Þar áður var hún sölu-og markaðsstjóri Norðursiglingar á Húsavík. Frá árunum 2004-2008 var hún forstöðumaður markaðs-og söludeildar Kynnisferða. Birna hefur tekið þátt í mörgum uppbyggingarverkefnum og þar að auki starfað sem kennari hjá Mími Símennt.

Birna Lind hefur einnig setið í faghópi afþreyingarnefndar SAF og í stjórn Markaðsstofu Norðurlands.