© Aðsend mynd (AÐSEND)

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur skipað Birnu Lárusdóttur formann samgönguráðs til næstu fjögurra ára. Í samgönguráði sitja auk formanns sem ráðherra skipar forstöðumenn samgöngustofnana sem heyra undir ráðuneytið.

Fram kemur um skipun Birnu að hún er fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði og var varaþingmaður síðustu tvö kjörtímabil.

Hún lauk BA-prófi í fjölmiðlafræði með sálarfræði sem aukagrein frá háskólanum í Seattle í Bandaríkjunum. Birna starfaði á árum áður við blaðamennsku og ritstjórnarstörf meðal annars sem fréttaritari RÚV í Noregi og fréttamaður RÚV í svæðisútvarpi Vestfjarða. Birna hefur víðtæka reynslu af samgöngumálum í störfum sínum á vettvangi stjórnmála á undanförnum árum.