Bjarni Eyvinds Þrastarson hefur verið ráðinn til Straums fjárfestingabanka sem hlutabréfamiðlari hjá markaðsviðskiptasviði. Bjarni hefur frá árinu 2004 unnið hjá MP Fjárfestingarbanka í markaðsviðskiptum. Þar áður vann hann hjá SPRON við eignastýringu og eigin viðskipti. Bjarni er með MBA gráðu í viðskiptafræði með áherslu á fjármál frá Georg Washington háskólanum í Bandaríkjunum.