Björg Kristinsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri SPRON verðbréfa. Hún tekur við af Jóni Halli Péturssyni sem, að því er fram  kemur í tilkynningu, hefur ákveðið að láta af störfum hjá SPRON frá 1. desember næstkomandi.

Björg hefur starfað sem forstöðumaður eignastýringar hjá SPRON verðbréfum frá  2004. Áður starfaði hún í fjármáladeild Coca Cola í Póllandi, Anvanse Forvaltning í Ósló og þar áður starfaði Björg í 9 ár hjá Kaupþingi.

Björg útskrifaðist með MSc. frá Norwegian School of Management árið 1997.